Músíktilraunir 2026

Músíktilraunir 2026
📅 Date: March 28, 2026 17:00
📍 Location: Harpa , Reykjavík , IC

📅 Date: March 28, 2026 5:00 pm

📍 Venue: Harpa, Reykjavík, IC

This event ended on March 28, 2026.

Músíktilraunir eru árleg tónlistarhátíð, sem fór fyrst fram árið 1982. Þær veita frábært tækifæri til þess að fylgjast með grasrótinni í íslensku tónlistarlífi og hafa hljómsveitir á borð við Of Monsters and Men, Samaris, Vök, Mínus og Mammút borið sigur úr býtum.

Ungmenni á aldrinum 13–25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðu tilraunanna og greiða þátttökugjald.

Undankvöldin eru fjögur þar sem u.þ.b. 40 atriði keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið. 10–12 atriði komast í úrslit og hljóta efstu þrjár sveitirnar glæsileg verðlaun. Efnilegustu hljóðfæraleikararnir, texta- og lagasmiðirnir og rafheilarnir eru einnig valdir af dómnefnd en áhorfendur velja vinsælustu atriðið með símakosningu. Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt af Rás 2, sjónvarpað á RÚV 2 og streymt á www.ruv.is.

Í ár eru undankvöldin haldin 20.–23. mars og hefjast kl. 19:30 hvert kvöld, en úrslitakvöldið fer fram 28. mars kl. 17:00. Tilraunirnar fara fram í Norðurljósum og miðaverð er kr. 2.200 á undankvöld og kr. 2.700 á úrslitakvöldið.

Músíktilraunir hlutu heiðursverðlaunin Lítinn fugl á Degi íslenskrar tónlistar 2025 fyrir að „byggja brautarpall fyrir ungt fólk í tónlist og hafa um langt skeið leitt fyrstu skref efnilegasta tónlistarfólks landsins með farsælum hætti“.

Nánari upplýsingar er að finna á:
www.musiktilraunir.is
www.facebook.com/musiktilraunir

Icelandair er aðalbakhjarl Músíktilrauna.
Músíktilraunir eru styrktar af ÝLI tónlistarsjóði fyrir ungt fólk www.ylir.is.